1Tilgangur
Í þessu skjali er lýst þeim reglum sem gilda þegar vegir, göngu- og hjólastígar og önnur samgöngumannvirki eru teiknuð og uppfærð í Samgöngunetinu (e. Icelandic Road Database, IRDB). Markmiðið er að netið sé teiknað á sama hátt um allt land, óháð því hver teiknar.
Brýr fylgja ekki 200 m reglunni, heldur eru þær alltaf teiknaðar eins og þær eru.
2Skilgreiningar
Eftirfarandi hugtök eru notuð í skjalinu. Ensk heiti eru gefin til glöggvunar.
- Samgöngunet IRDB
- Íslenski vegagagnagrunnurinn. Í honum eru geymd gögn um vegi, göngu- og hjólastíga, eiginleika þeirra og ýmis mannvirki í samgöngukerfinu.
- Vegur road
- Akbraut ásamt vegöxlum. Sjá mynd 1.
- Akbraut carriageway
- Sá hluti vegar sem ætlaður er fyrir umferð ökutækja.
- Akrein lane
- Hver þeirra samhliða reina sem akbraut skiptist í að endilöngu, annaðhvort með yfirborðsmerkingum eða vegna þess að hver rein er nógu breið fyrir eina röð ökutækja.
- Viðmiðunarlína reference link
- Lína sem táknar veg, akbraut, göngu- eða hjólastíg í Samgöngunetinu, yfirleitt miðlínu hans. Viðmiðunarlína liggur á milli tveggja nóða.
- Nóða node
- Punktur í netinu þar sem viðmiðunarlínur mætast eða enda, t.d. í vegamótum, við enda vegar eða þar sem göngu- og hjólakerfið tengist vegakerfinu. Nóður skilgreina hvernig netið hangir saman.
- Grannfræði topology
- Upplýsingar um hvernig viðmiðunarlínur tengjast hver annarri í gegnum nóður, óháð nákvæmri lögun þeirra.
- Rúmfræði geometry
- Lögun og lega viðmiðunarlínu í hnitum. Rúmfræðin ræður einnig lengd línunnar.
- Eiginleiki feature
- Upplýsingar sem skráðar eru á viðmiðunarlínu eða hluta hennar, t.d. slitlag, vegnúmer, götuheiti eða hámarkshraði.
- Veghaldari road authority
- Sá sem fer með forræði vegar og ber ábyrgð á rekstri hans og viðhaldi, yfirleitt Vegagerðin eða sveitarfélag.
3Ábyrgð
Samgöngunet er samstarfsverkefni Náttúrufræðistofnunar og Vegagerðarinnar. Náttúrufræðistofnun byggir upp og rekur kerfið, en Vegagerðin á verkefnið og ber ábyrgð á að gögnin séu rétt.
Veghaldarar bera ábyrgð á að koma upplýsingum um breytingar á sínum vegum til skila svo hægt sé að uppfæra Samgöngunetið.
4Teiknireglur
Samgöngunetið er einfölduð mynd af raunverulega vegakerfinu. Til að netið verði eins um allt land þarf samræmdar reglur um hvernig það er teiknað. Þeim reglum er lýst hér á eftir eins stuttlega og hægt er.
Myndirnar koma úr teiknireglum sænska vegagagnagrunnsins (NVDB) og á sumum þeirra er sænskur texti:
- Rätt – rétt
- Fel – rangt
- Före / Efter – fyrir / eftir
- Statlig väg – þjóðvegur
- Kommunal väg – sveitarfélagsvegur
- Planskilt – mislæg vegamót
- över / under – yfir / undir
- Länk – viðmiðunarlína
- Slitlager – slitlag
- Grus / Belagd – möl / bundið slitlag
4.1Almennar reglur fyrir vegi, göngu- og hjólastíga
Þrjár grundvallarreglur gilda um allt netið:
- Netið á að sýna hvernig vegir tengjast hver öðrum, hvort sem það er í gegnum vegamót, hringtorg eða brýr.
- Netið á að vera auðlæsilegt þegar það er teiknað á kort, svo að greina megi einstaka vegi og tengingar þeirra.
- Stundum þarf að einfalda tengingar, t.d. til að nóður lendi ekki of nálægt hver annarri.
Auk þess gildir eftirfarandi:
- Netið á ekki að brjóta upp í stuttar viðmiðunarlínur að óþörfu. Í vegakerfinu eiga að vera a.m.k. 5 metrar á milli nóða. Í göngu- og hjólakerfinu mega vera allt niður í 2 metrar á milli nóða.
- Netið á að vera samfellt og engin bil mega vera í því.
- Samsíða viðmiðunarlínur sem liggja mjög nálægt hvor annarri mega ekki skerast.
- Vegbreidd viðmiðunarlínu á að jafnaði ekki að skarast við vegbreidd aðliggjandi lína. Undantekning er hjólarein á akbraut, þar sem breidd hjólareinarinnar telst hluti af akbrautinni.
- Þegar nýtt net er skráð þarf að taka tillit til nets sem er fyrir. Stundum þarf fyrst að lagfæra það sem fyrir er, svo línur skerist ekki óvart og nóður lendi ekki of nálægt hver annarri þar sem netin tengjast.
- Engin viðmiðunarlína og enginn hópur viðmiðunarlína má vera einangraður frá restinni af netinu. Eina undantekningin eru eyjar sem hvorki hafa fasta vegtengingu né ferjusiglingar.
4.2Vegakerfið
Í þessum kafla er lýst þeim reglum sem gilda um vegakerfið.
4.2.1Grunnregla um framsetningu vega
Viðmiðunarlínan á að liggja eftir miðlínu akbrautar. Ef akbrautin er ein er teiknuð ein lína. Ef akbrautir eru aðskildar, t.d. með vegriði eða miðeyju, er teiknuð ein lína fyrir hvora akstursstefnu.
Línan á að vera eins bein og kostur er. Ekki á að taka tillit til staðbundinnar breikkunar, t.d. við bílastæði, strætóbiðstöðvar eða framúrakstursreinar.
Til að vita hvar línan á að liggja þarf að gera greinarmun á hugtökunum akrein, akbraut og vegur, sjá mynd 1 og skilgreiningar.
Taflan sýnir hvar viðmiðunarlínan liggur fyrir algengustu gerðir vega.
| Gerð vegar | Lega viðmiðunarlínu | Skýringarmynd |
|---|---|---|
| Venjulegur vegur eða gata | Miðja akbrautar, ein lína fyrir allan veginn. | ![]() |
| Aðskildar akbrautir milli tveggja vegamóta | Miðja hvorrar akbrautar, ein lína fyrir hvora akstursstefnu. | ![]() |
| Akbrautir sem eru aðskildar á 200 m kafla eða lengri | Miðja hvorrar akbrautar, ein lína fyrir hvora akstursstefnu. | ![]() |
| 2+1 vegur með miðjuvegriði | Miðlína ytri akreinar, ein lína fyrir hvora akstursstefnu. | ![]() |
| 2+2 vegur með miðjuvegriði | Miðja hvorrar akbrautar, ein lína fyrir hvora akstursstefnu. | ![]() |
| Vegur með mörgum akreinum, t.d. fjórum | Miðja akbrautar. Ef akbrautir eru aðskildar með vegriði eða miðeyju er ein lína fyrir hvora akstursstefnu. | ![]() |
| Hraðbraut | Miðja akbrautar í hvora akstursstefnu. Línan fellur ekki alltaf saman við málaða akreinalínu. | ![]() |
4.2.2Frávik frá grunnreglunni
Í nokkrum tilvikum er vikið frá grunnreglunni til að viðmiðunarlínan sveiflist ekki fram og til baka á milli akreina.
1. Blanda af 2+2 og 2+1 vegi. Vegur er með tvær akreinar í aðra áttina alla leiðina en skiptist á að vera með eina eða tvær akreinar í hina. Þar er línan teiknuð eftir vinstri akreininni, sem helst heil allan kaflann, sjá mynd 2.
2. Langur innakstursrampur. Þegar hægri akreinin er langur innakstursrampur heldur línan áfram eftir vinstri akreininni og sveigir ekki yfir á þá hægri, sjá mynd 3 og mynd 4.
3. Rampur verður að akrein. Við mislæg vegamót á 2+1 vegum er algengt að innakstursrampur verði að akrein, þannig að ein akrein verður tvær. Þá sveigir viðmiðunarlínan út á ytri akreinina, eins og grunnreglan segir til um, sjá mynd 5.
4. Bílastæði og opin svæði. Á opnum svæðum með afmörkuðum akstursleiðum, t.d. stórum bílastæðum, má teikna viðmiðunarlínur eftir helstu akstursleiðum, sjá mynd 6.
4.2.3Áframhaldsregla
Forðast á að skipta fram og til baka á milli einnar og tveggja viðmiðunarlína þegar akbrautir eru aðskildar á stuttum köflum. Ef kafli er styttri en 200 metrar á framsetningin í netinu ekki að breytast, jafnvel þótt aðskilnaðurinn rofni í raun, t.d. við stutt rof í vegriði eða við vegamót.
Þegar lengd aðskilnaðar er metin skal aðeins líta á það sem skilur akbrautirnar að, t.d. vegrið, miðeyju eða málaða aðgreiningu. Vegir sem tengjast inn á kaflann rjúfa hann ekki.
Dæmi 1. Tvær aðskildar viðmiðunarlínur eru teiknaðar alla leiðina á milli nóða A og B, því rofið í vegriðinu er styttra en 200 metrar, sjá mynd 7.
Dæmi 2. Ef annar hvor kaflinn A–B eða C–D er lengri en 200 metrar eru teiknaðar tvær aðskildar viðmiðunarlínur alla leiðina frá A til D, sjá mynd 8.
Dæmi 3. Máluð aðgreining (t.d. skástrikað svæði eða framúrakstursbann) getur líka leitt til tveggja aðskilinna lína, sjá mynd 9.
Brýr
200 metra reglan gildir ekki um brýr. Brú er alltaf teiknuð eins og hún er, óháð lengd. Ef á brúnni eru tvær akbrautir með vegriði eða annarri hindrun á milli eru teiknaðar tvær viðmiðunarlínur. Ef akbrautin er ein er teiknuð ein lína, sjá mynd 10.
Dæmi um áframhaldsregluna
Á mynd 11 eru akbrautirnar aðskildar með miðeyjum frá hringtorginu að T-vegamótunum hægra megin. Austan við T-vegamótin skilur máluð aðgreining umferðina að.
Til að halda samfellu sameinast viðmiðunarlínurnar ekki í eina nóðu fyrr en máluðu aðgreiningunni lýkur, við gangbrautina lengst til hægri, sjá mynd 12.
4.2.4Staðsetning nóða
Í vegakerfinu eru nóður aðeins settar:
- þar sem vegir skerast í sama plani (nóðan er á skurðpunkti viðmiðunarlínanna),
- við enda vega,
- þar sem vegur tengist göngu- eða hjólakerfinu.
Lengd viðmiðunarlínu á milli tveggja nóða (mæld í láréttu plani) á að vera meiri en 5 metrar. Ef stutt lína sem myndast í vegamótum yrði styttri en 5 metrar eru línurnar sameinaðar í eina nóðu.
Undantekning gildir þar sem vegakerfið tengist göngu- og hjólakerfinu. Þar mega vera allt niður í 2 metrar á milli nóða, en aldrei minna.
Nóður við málaða aðgreiningu
Þar sem akbrautir eru aðgreindar með málaðri aðgreiningu (skástrikuðu svæði) er nóðan sett þar sem aðgreiningin byrjar eða endar, sjá mynd 14.
Þegar tvær línur verða ein
Þar sem tvær akbrautir, sem teiknaðar eru með tveimur viðmiðunarlínum, renna saman í eina er nóðan sett þar sem málaða aðgreiningin endar, sjá mynd 15.
4.2.5Upphaf og endir viðmiðunarlína
Nóða er sett þar sem vegur byrjar eða endar. Oftast liggur í augum uppi hvar það er, en dæmin hér á eftir hjálpa í flóknari tilvikum.
Vegur endar á snúningssvæði
Þar sem vegur endar á snúningssvæði eða öðru stóru opnu svæði er nóðan sett þar sem viðmiðunarlínan sker ytri brún akstursflatarins, sjá mynd 16.
Vegur endar í snúningslykkju
Þar sem vegur endar í snúningslykkju með eyju í miðjunni á viðmiðunarlínan að fylgja lykkjunni eins og hún er í raun, sjá mynd 17.
4.2.6Vegamót og hringtorg
Grundvallarreglurnar í kafla 4.1 gilda um öll vegamót og hringtorg. Að auki þarf að meta hvert tilvik fyrir sig. Reglurnar hér á eftir ná aðeins yfir algengustu tilvikin.
- Fyrst á að tryggja að allar tengingar (mögulegar akstursleiðir) komi fram.
- Síðan á að fylgja málum fyrir umferðareyjar og aðgreiningu (kafli 4.2.6.12).
Þegar nýjum vegi er bætt við vegamót þarf að endurmeta vegamótin í heild áður en ákveðið er hvar nóður eiga að vera.
4.2.6.1Einföld T-vegamót
Í T-vegamótum er nóðan sett á skurðpunkt viðmiðunarlínanna, sjá mynd 18.
4.2.6.2T-vegamót með aðskildum akbrautum
Ef allir vegirnir að vegamótunum eru með aðskildar akbrautir eru samkvæmt grunnreglunni settar fjórar nóður, svo framarlega sem engin lína verður styttri en 5 metrar, sjá mynd 19.
Ef aðeins einn vegurinn er með aðskildar akbrautir er sett ein nóða, sjá mynd 20.
Ef tveir vegir eru með aðskildar akbrautir eru settar tvær nóður, sjá mynd 21.
Í vegamótum af þessu tagi á að forðast hvöss horn eins og kostur er. Mynd 22 sýnir ranga útfærslu þar sem hvasst horn veldur vandræðum fyrir leiðsögn úr norðri til vesturs.
4.2.6.3T-vegamót við lykkju
Þegar vegur tengist lykkju er alltaf teiknað með tveimur aðskildum viðmiðunarlínum: annarri fyrir lykkjuna og hinni fyrir veginn að henni. Nóða er sett þar sem línurnar mætast, sjá mynd 23.
4.2.6.4Skásett T-vegamót
Viðmiðunarlínurnar eiga að endurspegla hvernig vegamótin eru byggð. Grunnreglan gildir líka um skásett T-vegamót og nóðan er sett á skurðpunkt línanna, sjá mynd 24.
Oftast tengist vegurinn þó hornrétt og þá er nóðan sett eins og sýnt er á mynd 25.
4.2.6.5Einföld krossvegamót
Í krossvegamótum er nóðan sett á skurðpunkt viðmiðunarlínanna, sjá mynd 26.
Ef allir vegirnir eru með aðskildar akbrautir eru settar fjórar nóður, ein á hvern skurðpunkt, svo framarlega sem engin lína verður styttri en 5 metrar, sjá mynd 27.
Ef þrír vegir eru með aðskildar akbrautir og einn ekki eru settar þrjár nóður, sjá mynd 28.
Ef tveir vegir eru með aðskildar akbrautir eru settar tvær nóður. Mynd 29 sýnir tilvik þar sem vegirnir tveir liggja hlið við hlið. Þar getur verið erfitt að komast hjá hvössum hornum. Mynd 30 sýnir tilvik þar sem þeir liggja hvor á móti öðrum.
4.2.6.6Skásett krossvegamót
Í skásettum krossvegamótum er nóðan sett á skurðpunkt viðmiðunarlínanna, sjá mynd 31.
4.2.6.7Hliðruð krossvegamót
Hliðruð krossvegamót fá tvær nóður ef meira en 5 metrar eru á milli skurðpunktanna, sjá mynd 32. Ef fjarlægðin er minni en 5 metrar fá þau eina nóðu, sjá mynd 33.
4.2.6.8Nýr vegur tengist vegamótum sem fyrir eru
Þegar nýjum vegi er bætt við vegamót þarf að endurmeta vegamótin í heild áður en ákveðið er hvar nóður eiga að vera.
Á mynd 34 hefur nýr vegur verið tengdur við vegamót sem fyrir voru. Í miðjunni sést röng útfærsla, þar sem nýi vegurinn var einfaldlega tengdur við án þess að vegamótin væru endurmetin. Lengst til hægri er rétt útfærsla.
4.2.6.9Hringtorg
Hringtorg eru teiknuð eins og þau eru hönnuð, yfirleitt sem hringur. Nóður eru settar þar sem viðmiðunarlínur aðliggjandi vega skera línu hringtorgsins, sjá mynd 35.
Lítil hringtorg sem eru akfær í heild sinni, án umferðareyja, og þar sem ekki næst 5 metra fjarlægð á milli nóða eru alltaf teiknuð sem ein nóða. Ef umferðareyjar eru við hringtorgið gilda reglurnar í kafla 4.2.6.12.
4.2.6.10Vegamót með dropaeyju
Við vegamót með dropalaga eyju (dropaeyju) er nóðan sett þar sem skástrikaða svæðið eða miðeyjan byrjar eða endar, sjá mynd 36 og mynd 37.
Ef vegrið eða önnur hindrun er á milli akbrautanna sameinast línurnar ekki í eina nóðu við enda dropans, heldur halda áfram sem tvær línur samkvæmt grunnreglunni, sjá mynd 38 og mynd 39.
4.2.6.11Inn- og útakstursrampar
Inn- og útakstursrampar eiga að tengjast aðalveginum strax þar sem skástrikaða svæðið (eða miðeyjan) endar.
Helst á rampurinn að tengjast sem eðlilegt framhald af legu sinni, án þess að fara yfir miðeyju eða skástrikað svæði, sjá mynd 40 og mynd 41.
Ef það er ekki hægt er rampurinn tengdur við aðalveginn með u.þ.b. 45° horni, án þess að fara yfir miðeyju eða skástrikað svæði, sjá mynd 42 og mynd 43.
Fléttukafli, þar sem innakstursrampur verður strax að útakstursrampi, fær ekki eigin viðmiðunarlínu heldur fylgir grunnreglunni. Ef minna en 5 metrar yrðu á milli nóða er sett ein nóða, sjá mynd 44.
4.2.6.12Umferðareyjar og skástrikuð svæði í vegamótum
Miðeyjar og skástrikuð svæði geta orðið til þess að ein viðmiðunarlína skiptist í tvær. Um það gilda eftirfarandi reglur:
1. Miðeyjar sem skilja að umferð í gagnstæðar áttir. Til að línan skiptist þarf lengri hlið eyjunnar að vera a.m.k. 25 metrar og styttri hliðin a.m.k. 10 metrar. Að jafnaði er aðeins litið til varanlegra hindrana, s.s. upphækkaðra eyja og vegriða. Málað skástrikað svæði getur einnig leitt til skiptingar ef tengja þarf upplýsingar við tiltekna akstursleið eða lýsa virkni netsins á staðnum. Skástrikað svæði sem nær 25 × 10 metrum og er auk þess afmarkað með varanlegum hindrunum, t.d. umferðarmerkjum eða stikum, er alltaf teiknað með aðskildum línum.
2. Eyjar sem skilja að umferð í sömu átt (stefnueyjar) leiða alltaf til aðskilinna lína, sjá mynd 47–mynd 50.
3. Málaðar stefnueyjar. Til að hægt sé að tengja umferðarreglur eða aðrar upplýsingar við rétta akstursleið leiða máluð skástrikuð svæði sem skilja að umferð í sömu átt einnig til aðskilinna lína, sjá mynd 51.
Mynd 52 sýnir hringtorg með mörgum mismunandi gerðum eyja.
4.2.6.13Flókin vegamót
Tengingar ganga fyrir lögun. Einföld framsetning með réttum tengingum hefur forgang fram yfir nákvæma rúmfræði. Þetta á sérstaklega við þar sem vegir með aðskildum akbrautum mætast. Til að ná einfaldri og réttri framsetningu, án óþarfa nóða og lína, þarf oft að slaka á kröfum um lögun og jafnvel staðsetningarnákvæmni innan vegamótanna. Annars er hætta á að netið verði teiknað á ólíkan hátt eftir því hver teiknar.
Í flóknum vegamótum mætast oft margar viðmiðunarlínur. Þá þarf fyrst og fremst að tryggja að allar tengingar séu réttar og að allar mögulegar akstursleiðir komi fram. Gott vinnulag er:
- Finndu allar miðeyjar og skástrikuð svæði sem gætu leitt til aðskilinna lína.
- Teiknaðu þær viðmiðunarlínur sem aðskilnaðurinn kallar á og framlengdu þær inn að vegamótunum.
- Tengdu línurnar í vegamótunum þannig að tengingarnar séu réttar og hægt sé að aka í gegn.
- „Prufuaktu“ allar akstursleiðir og forðastu horn sem eru minni en 90° eins og hægt er.
4.2.7Snúningsstaðir milli akbrauta
Þar sem hægt er að snúa við á milli aðskilinna akbrauta, þ.e. þar sem miðeyjan er ekki lokuð með vegriði eða annarri hindrun, á alltaf að bæta við tengilínu á milli akbrautanna, sjá mynd 54.
Tengilínan á að fylgja raunverulegri akstursleið á staðnum. Mynd 55 sýnir dæmi þar sem hindranir loka hluta svæðisins á milli akbrautanna.
4.2.8Ferjuleiðir
Ferjuleið er teiknuð sem lína á milli ferjubryggja og á að fylgja líklegri siglingaleið ferjunnar, sjá mynd 56.
Ferjuleiðir til útlanda eru teiknaðar á sama hátt, en enda í nóðu á hafi úti, við landhelgismörk í átt að áfangastaðnum, sjá mynd 57.
4.3Göngu- og hjólakerfið
Í þessum kafla er lýst reglum sem gilda um göngu- og hjólakerfið, þ.e. gangstéttir, göngustíga, hjólastíga og hjólareinar.
4.3.1Grunnregla
Viðmiðunarlínan á að liggja eftir miðlínu hjólastígs, gangstéttar eða hjólareinar, sjá mynd 58.
Myndirnar hér á eftir sýna dæmigerð tilvik og hvort teikna á línu fyrir gönguleið, hjólaleið eða hvort tveggja. Umferðarmerki við stíginn (mynd 61) gefa vísbendingu um hvers konar stígur er á ferðinni.
| # | Aðstæður | Hvað er teiknað |
|---|---|---|
| 1 | Vegur án sérstaks svæðis fyrir gangandi og hjólandi | Engin lína í göngu- og hjólakerfinu. |
| 2 | Vegur með gangstétt | Lína fyrir gönguleið, ein hvoru megin ef gangstétt er beggja vegna. |
| 3 | Vegur með sameiginlegum göngu- og hjólastíg | Lína fyrir hjólaleið, ein hvoru megin ef stígur er beggja vegna. |
| 4 | Göngu- og hjólastígur sem skipt er í göngu- og hjólahluta með merkingum eða sambærilegu | Ein lína fyrir hjólaleið. |
| 5 | Gangstétt og hjólarein máluð á akbrautinni | Línur fyrir bæði gönguleið og hjólaleið. |
| 6 | Gangstétt og hjólastígur aðskilin með varanlegri hindrun | Línur fyrir bæði gönguleið og hjólaleið. Umferðareyjar einar og sér skipta göngu- og hjólakerfinu ekki upp. |
Mynd 62 sýnir raunveruleg dæmi um tilvik 4 og 5, og mynd 63 sýnir dæmi um tilvik 6, þar sem stígnum er skipt í tvær línur vegna hindrunar.
Línan á að vera eins bein og kostur er og ekki á að taka tillit til staðbundinnar breikkunar stíga. Þegar göngu- og hjólaleið liggja um sama svæði en eru greinilega ólíkar að gerð, lit eða efni eru þær teiknaðar með aðskildum línum.
Á opnum svæðum, svo sem torgum, bílastæðum og sameiginlegum umferðarsvæðum, er teiknuð ein eða fleiri línur eftir helstu leiðum yfir svæðið. Þar sem línur skerast eru þær tengdar með nóðu, sjá mynd 64.
Línur gangstétta og hjólastíga mega ekki flakka fram og til baka yfir línu vegarins, t.d. vegna þess að önnur línan er ónákvæmari en hin. Göngu- og hjólakerfið á alltaf að vera réttu megin við línu vegarins, og þegar kerfin liggja samsíða á fjarlægðin á milli þeirra að vera í eðlilegu hlutfalli við breidd vegarins.
Ekki er hægt að teikna lóðrétta leið, eins og lyftu, í Samgöngunetinu. Því er línan látin halla lítillega, þannig að um 1 metri sé á milli neðri og efri enda hennar í láréttu plani.
Gangbraut og hjólaþverun sem liggja hlið við hlið yfir götu fá sameiginlega viðmiðunarlínu, sjá mynd 65.
Í flóknum vegamótum getur þurft að láta einfaldar tengingar ganga fyrir nákvæmri legu og lögun. Til að hafa sem fæstar nóður í vegamótunum getur línan því vikið lítillega frá raunverulegri legu stígsins.
4.3.2Áframhaldsregla
Í göngu- og hjólakerfinu er stefnt að samfelldum línum. Ef hjólastígur eða gangstétt rofnar tímabundið, t.d. við vegamót, strætóbiðstöð eða innkeyrslu, er línan samt teiknuð áfram í gegnum vegamótin, framhjá biðstöðinni eða yfir innkeyrsluna. Sama gildir um gangstéttir: gönguleiðin heldur áfram yfir vegamót þótt þar sé engin merkt gangbraut, sjá mynd 66.
Línan er teiknuð áfram ef stígurinn birtist aftur innan:
- 20 metra fyrir hjólastíga og hjólareinar,
- 50 metra fyrir gangstéttir og göngustíga.
4.3.3Staðsetning nóða
Eins og í vegakerfinu eru nóður í göngu- og hjólakerfinu aðeins settar:
- þar sem leiðir skerast í sama plani (nóðan er á skurðpunkti viðmiðunarlínanna),
- við enda stígs eða gangstéttar,
- þar sem göngu- og hjólakerfið tengist vegakerfinu.
Munurinn er sá að á milli nóða mega vera allt niður í 2 metrar (í láréttu plani). Við lyftur er 1 metri ásættanlegur. Þetta getur þýtt að stundum þarf að sameina línur í eina nóðu. Í vegakerfinu er lágmarkið 5 metrar.
Á mynd 68 sést:
- Hvernig hjólastígur tengist vegakerfinu þegar meira en 2 metrar eru frá hornréttri tengingu að næstu nóðu vegarins. Ef tengingin yrði innan við 2 metra frá nóðu sem fyrir er, er tengt í þá nóðu í staðinn (mynd 69).
- Hvernig gangbraut með samliggjandi hjólaþverun tengist gangstéttum og vegakerfinu með nóðum.
- Að þar sem göngu-, hjóla- og vegakerfi skerast í sama plani eru settar nóður.
4.3.4Tenging göngu- og hjólakerfis við vegakerfið
Hér er lýst hvernig göngu- og hjólakerfið á að tengjast vegakerfinu. Einnig þarf að tengja kerfin þar sem líklegt er að fólk haldi ferð sinni áfram eftir veginum, jafnvel þótt stígurinn tengist veginum ekki í raun heldur liggi samsíða honum, sjá mynd 70.
Göngu- og hjólakerfið á alltaf að tengjast vegakerfinu á snúningssvæðum. Ef tengingin yrði styttri en 2 metrar eru kerfin sameinuð í einni nóðu. Það má gera á þrjá vegu:
- Göngu- og hjólakerfið er tengt við nóðuna sem fyrir er við enda vegarins.
- Vegurinn er framlengdur að göngu- og hjólakerfinu.
- Vegurinn er lagfærður þannig að nóðan lendi mitt á milli enda snúningssvæðisins og miðlínu stígsins.
4.3.5Tenging staðfanga við netið
Frá hverjum staðfangspunkti á að vera greið leið, hornrétt og án hindrana, að einhverjum hluta netsins, mest 5 metrar. Ef lengra er í netið fær staðfangið eigin viðmiðunarlínu frá stígnum að dyrunum, sjá mynd 73.
- Staðföng 1, 3, 5 og 7 fá viðmiðunarlínu frá göngustígnum að dyrum, því meira en 5 metrar eru í stíginn.
- Staðföng 2, 4 og 8 fá ekki línu, því minna en 5 metrar eru í stíginn.
- Staðfang 6 fær línu þótt stutt sé í stíginn, því girðing lokar beinni leið og krókurinn verður lengri en 5 metrar.
4.3.6Tengingar milli göngu-, hjóla- og vegakerfis
Ef vega-, göngu- og hjólakerfin eru ekki tengd saman getur leiðsögn orðið mjög ruglingsleg fyrir gangandi og hjólandi, sem gætu þá verið sendir marga kílómetra krók til að komast yfir götuna.
Því á að tengja kerfin saman þar sem það á við. Alltaf á að setja nóðu þar sem línur göngu-, hjóla- og vegakerfis skerast í sama plani, svo gangandi og hjólandi komist inn á vegakerfið. Ef tiltekinn ferðamáti má ekki fara um tenginguna er það gefið til kynna með viðeigandi eiginleikum.
Einnig á að tengja göngu- og hjólakerfið við vegakerfið þar sem fólk gæti viljað halda áfram eftir veginum, jafnvel þótt stígurinn tengist veginum ekki í raun heldur liggi samsíða honum. Annars verður leiðsögn fyrir gangandi og hjólandi óraunhæf.
Þegar göngu- og hjólakerfið er teiknað þarf stundum líka að teikna vegi sem annars væru ekki í vegakerfinu, svo að göngu- og hjólakerfið nýtist til leiðsagnar. Oftast eru þetta litlir einkavegir og bílastæði. Til dæmis getur þurft að teikna bílastæði svo að stígurinn tengist götunni. Leiðsögukerfi getur aðeins fylgt skráðum viðmiðunarlínum og tekið ákvarðanir í nóðum. Það veit ekki af tengingum sem eru til í raun ef þær vantar í gagnagrunninn, sjá mynd 74.
Vegir á bílastæðum eru hluti af vegakerfinu og þurfa að vera til staðar til að tengja göngu- og hjólakerfið við restina af netinu, sjá mynd 75.
4.3.7Vegur með hjólaöxlum (2–1 vegur)
Í Svíþjóð er til vegagerð sem kallast bygdeväg eða bymiljöväg (á ensku 2-minus-1 road). Þar er ein akrein í miðjunni fyrir umferð í báðar áttir og breiðar axlir, afmarkaðar með brotnum kantlínum, fyrir gangandi og hjólandi. Ökutæki mega aka út á axlirnar þegar þau mætast. Útfærslan getur verið mismunandi, sjá mynd 76.
Á slíkum vegum er ekki teiknuð lína í göngu- og hjólakerfinu. Þar sem ökutæki mega aka út á axlirnar teljast þær hvorki göngu- og hjólastígur né hjólarein.
4.4Umfang eiginleika
Eiginleiki sem nær yfir heilan kafla á alltaf að skrá frá nóðu til nóðu. Hann á að ná alla leið að nóðunni svo ekki myndist eyður. Á mynd 77 á slitlagið „möl“ að ná alla leið að nóðunni við veginn með bundnu slitlagi.






